KR 2-0 Fram
1-0 Björgólfur Takefusa ('31)
2-0 Viktor Bjarki Arnarsson ('38)
KR og Fram áttust við í sextán liða úrslitum VISA bikarsins nú fyrr í kvöld. KR var í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar, en Fram í því fjórða.
1-0 Björgólfur Takefusa ('31)
2-0 Viktor Bjarki Arnarsson ('38)
KR og Fram áttust við í sextán liða úrslitum VISA bikarsins nú fyrr í kvöld. KR var í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar, en Fram í því fjórða.
Auðun Helgason var ekki í liði Framara, en hann er að glíma við meiðsli í ökkla. Þá var Gunnar Örn Jónsson ekki með KR vegna meiðsla.
Leikurinn fór frekar hægt af stað og voru liðin að þreifa mikið fyrir sér. Fyrsta marktækifæri leiksins fékk Heiðar Geir Júlíusson fyrir Framara.
Hjálmar Þórarinsson átti þá mjög góðan sprett áður en að hann gaf sendingu á Heiðar Geir, sem að skallaði boltann yfir markið.
Heiðar Geir var aftur á ferðinni tveimur mínútum síðar þegar að Paul McShane átti fast skot sem að fór í Heiðar og þaðan rétt framhjá markinu.
Fyrsta færi heimamanna úr Vesturbænum fékk Guðjón Baldvinsson. Boltinn barst til hans fyrir framan vítateiginn og átti skot sem að fór framhjá nærstönginni.
Þegar að tæpar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum þurfti Daði Guðmundsson að fara af leikvelli og inná í hans stað kom Ívar Björnsson. Ívar fékk prýðis færi til þess að koma gestunum yfir þegar að hann missti af boltanum eftir sendingu frá Paul McShane.
KR-ingar komust yfir eftir rúman hálftíma og var þar að verki markahrókurinn Björgólfur Takefusa.
Viktor Bjarki Arnarsson átti hornspyrnu á nærstöng þar sem að Björgólfur náði að pikka knettinum yfir marklínuna, 1-0 fyrir heimamenn.
Heimamenn náðu að bæta forystu sína sjö mínútum síðar. Óskar Örn Hauksson lék ágætlega með boltann fyrir utan vítateig Framara og gaf síðan knöttinn út á Skúla Jón Friðgeirsson, sem að átti skot að marki og Hannes Þór Halldórsson varði það út á Viktor Bjarka Arnarsson sem að þakkaði pent fyrir sig og lagði boltann í netið.
Ekkert markvert gerðist eftir þetta í fyrri hálfleiknum og heimamenn því 2-0 yfir í leikhléi.
Framarar mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfleiknum og það var ljóst að þeir ætluðu að selja sig dýrt. Þeir pressuðu heimamenn hátt uppi, en þeim tókst samt eki að skapa sér nógu góð marktækifæri.
Það gerðist ekki mikið í seinni hálfleiknum og fyrsta almennilega færi leiksins kom á 75. mínútu. Framarar áttu aukaspyrnu á hægri kantinum og hún skapaði mikinn usla í teig KR-inga, en þeir náðu að bjarga í horn.
Ekkert markvert gerðist eftir þetta og heimamenn í KR því komnir áfram í átta liða úrslit bikarsins, en Framarar sitja eftir með sárt ennið.
KR (4-4-2):
Stefán Logi Magnússon (M), Guðmundur Reynir Gunnarsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Jónas Guðni Sævarsson, Skúli Jón Friðgeirsson, Ingimundur Níels Óskarsson (Skúli Jónsson '83), Jónas Guðni Sævarsson (Kristinn Magnússon '61), Viktor Bjarki Arnarsson, Óskar Örn Hauksson, Guðjón Baldvinsson, Björgólfur Takefusa (Guðmundur Pétursson '67).
Ónotaðir varamenn: Kristján Finnbogason, Ásgeir Örn Ólafsson, Vilhjálmur Darri Einarsson, Eggert Rafn Einarsson, Skúli Jónsson.
Fram (4-4-2): Hannes Þór Halldórsson (M), Samuel Tillen, Jón Orri Ólafsson, Reynir Leósson, Daði Guðmundsson (Ívar Björnsson '19), Ingvar Þór Ólason, Örn Kató Hauksson (Grímur Björn Grímsson '78), Halldór Hermann Jónsson, Paul McShane, Heiðar Geir Júlíusson (Joseph Tillen '58), Hjálmar Þórarinsson.
Varamenn: Ögmundur Kristinsson, Hlynur Atli Magnússon, Grímur Björn Grímsson, Guðmundur Magnússon, Kristinn Ingi Halldórsson.
Gul spjöld: Guðjón Baldvinsson (KR, '33), Paul McShane (Fram, '60), Guðmundur Reynir Gunnarsson (KR, '75), Viktor Bjarki Arnarsson (KR, '90).
Maður leiksins: Viktor Bjarki Arnarsson (KR)
Dómari: Eyjólfur M. Kristinsson
Aðstæður: Sólskin og völlurinn ágætur.
Áhorfendur: 1.078



