Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 07:00
Þórður Már Sigfússon
Heimild: Verdens Gang 
Þjálfari Brann: Birkir mun vaxa hérna
Birkir Már Sævarsson
Birkir Már Sævarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Mons Ivar Mjelde, þjálfari Brann, væntir mikils af Birki Má Sævarssyni sem mun að öllum líkindum ganga til liðs við félagið í næstu viku og velkist ekki í vafa um að hann komi til með að vaxa og dafna hjá félaginu.

,,Hann fær tvær vikur til þess að kynnast nýju liðsfélögunum á æfingum,” sagði Mjelde í samtali við Verdens Gang í gær og lagði áherslu á að hann komi til með að veita reyndari leikmönnum í liðinu samkeppni frá fyrsta degi.

,,Hann er fljótur leikmaður og er yfirvegaður þegar hann er með boltann. Þá hefur reynslan með íslenska landsliðinu einnig bætt hann mikið.”

Slapp
banner