Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfari Breiðabliks var að vonum sáttur eftir að hans menn slógu Val út úr VISA-bikarnum 1-0 í kvöld.
,,Þetta var gríðarlega flottur leikur hjá liðinu, frá aftasta manni til fremsta og hvernig við sóttum og hvernig við vörðumst þá er ég gríðarlega sáttur með liðinu," sagði Ólafur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Blikar voru miklu sterkari aðilinn í leiknum og gáfur fá færi á sér.
,,Í fyrri hálfleik fannst mér þeir ekki eiga séns ekki neinn, við lágum allan fyrri hálfleikinn. Þarna í restina þegar þeir fóru að hella háum boltum inná okkur þá hefði eitthvað getað gerst en mér fannst við vera með leikinn alveg í lúffunni frá fyrst til síðustu mínútu."
Jóhann Berg skoraði sitt fyrsta mark í sumar þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu.
,,Hann var góður í þessum leik, skoraði gott mark og það er gott að vera búinn að fá hann í gang, hann er búinn að fá nokkur færi og þetta létti smá á honum," sagði Ólafur sem hefur ekki áhyggjur af Marel Baldvinssyni sem á í erfiðleikum með að koma boltanum yfir línuna.
,,Það er ekkert áhyggjuefni, við hugsum ekki þannig að Marel geti skorað við vitum að Marel getur skorað og þegar stíflan brestur þá verður annar bragur, ég hef gríðarlega trú á Marel enda sást það að ég tók hann ekki útaf þótt að sumir hefðu viljað það. Það kom ekki til greina að taka hann útaf, hann átti frábæran leik og kannski það eina sem vantar er að hann skori."
,,Spilamennskan hjá liðinu var frábær frá fyrstu til síðustu mínútu og fylgdum eftir frá leiknum gegn Keflavík með góðri spilamennsku og inbyrtum sigur," sagði Ólafur að lokum í samtali við Fótbolta.net.





