Reynir Leósson, leikmaður Fram var ekki sáttur eins og bera að skilja eftir tap liðsins gegn KR í sextán liða úrslitum VISA bikarsins.
KR vann leikinn 2-0 með mörkum frá Björgólf Takefusa og Viktori Bjarka Arnarssyni.
KR vann leikinn 2-0 með mörkum frá Björgólf Takefusa og Viktori Bjarka Arnarssyni.
,,Ég er ekki sáttur við að detta út úr bikarnum. Þetta var erfiður leikur, en mér fannst við í góðu standi framan af," sagði Reynir við Fótbolta.net eftir leik.
,,Við áttum að komast í 1-0, vorum í rauninni betri aðilinn fyrsta hálftímann og fengum tvö dauðafæri til þess að setja á þá, en þeir koma til baka og setja eiginlega skelfilegt mark eftir hornspyrnu þar sem að Björgólfur er aleinn, ekki sá stærsti en hann nær að pota honum inn."
Framarar voru mikið betri aðilinn í byrjun leiksins, en KR komst yfir eftir rúman hálftíma og bættu síðan marki stuttu seinna.
,,Mér fannst við vera að spila vel fyrsta hálftímann, en eftir það vorum við ekki nógu þéttir."
Auðun Helgason gat ekki leikið með Fram í leiknum í kvöld og segir Reynir að liðið hafi saknað hans í leiknum.
,,Maður saknar alltaf góðra manna og auðvitað söknuðum við hans (Auðuns)."
Fram er í fjórða sæti Landsbankadeildarinnar og eiga erfiðan leik framundan gegn Val og Reynir er bjartsýnn fyrir framhaldið í deildinni.
,,Mér lýst mjög vel á framhaldið í deildinni. Alltaf bjartsýnn fyrir leiki," sagði Reynir Leósson að lokum í samtali við Fótbolta.net.



