Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 21:52
Hörður Snævar Jónsson
Willum Þór: Blikar verðskulduðu sigur
Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Willum Þór Þórsson þjálfari Vals var vitanlega ósáttur eftir að hans menn féllu út úr bikarnum gegn Breiðablik í kvöld þar sem liðið tapaði 1-0.

,,Það er alltaf svekkjandi að detta út úr bikarnum, spilamennskan var ekkert sérstök og Blikarnir verðskulduðu sigur;" sagði Willum í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

Spilamennska Valsmanna í kvöld var ekki góð og ljóst að mikið þarf að lagast ætli liðið sér að gera atlögu að sigri í deildinni.

,,Við náðum okkur aldrei á flug og vorum ekki líkir sjálfum okkur og Blikarnir eru auðvitað hörku lið og spiluðu virkilega vel í dag og við áttum í vandræðum inná miðjusvæðinu," sagði Willum en sóknarleikur Vals var afar bragðdaufur í leiknum.

,,Það er erfitt að ná upp góðum sóknarleik þegar við liggjum undir á miðjunni," sagði Willum sem sagði það vissulega svekkjandi að detta út úr bikarnum.

,,Auðvitað ætluðum við okkur alla leið en það getur auðvitað brugðið til beggja í svona slag, þetta eru tvö sterk lið og leikir þessara liða hafa verið barningur og hvorug liðin gefa mikið af færum á sig en við gáfum of mörg færi á okkur í dag og þeir höfðu okkur á miðsvæðinu og verðskulduðu sigur það er ekki hægt að segja annað," sagði Willum að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner
banner