Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 21:59
Davíð Örn Atlason
Logi Ólafsson: Mjög ánægður með að vera kominn áfram
Logi á hliðarlínunni í kvöld
Logi á hliðarlínunni í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Logi Ólafsson, þjálfari KR var að vonum ánægður með að vera kominn áfram í átta liða úrslit VISA bikarsins þegar að Fótbolti.net náði tali af honum.

KR vann Fram, 2-0 í Frostaskjólinu í kvöld og sáu þeir Björgólfur Takefusa og Viktor Bjarki Arnarsson um markaskorunina.

,,Ég er mjög sáttur við þetta. Við erum náttúrulega á svipuðum slóðum í deildinni og Framararnir eru með mjög gott lið, þannig að ég er mjög ánægður með að vera kominn áfram," sagði Logi Ólafsson í samtali við Fótbolta.net eftir leik.

Fram byrjaði leikinn af miklum krafti, en KR-ingar komu sterkir til leiks eftir rúman hálftíma og skoruðu tvö mörk með stuttu millibili.

,,Mér fannst við ekki byrja leikinn nógu vel, en eftir að við skoruðum þessi mörk þá fannst mér þetta ganga miklu betur hjá okkur og fannst sigurinn í sjálfum sér aldrei í mikilli hættu."

KR er í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar og eiga þeir leik gegn Þrótti í næstu umferð og segir Logi að sá leikur sé bara eins og allir aðrir.

,,Það er bara náttúrulega eins og allir aðrir leikir. Þróttararnir eru með mjög gott lið og hafa að mörgu leyti komið á óvart og spilað mjög skipulagðan og góðan fótbolta. Það verður bara eins og allir aðrir leikir, mjög erfiður," sagði Logi að lokum við Fótbolta.net.



Slapp
banner
banner
banner