Heimild: Sky
Ástralski kantmaðurinn Harry Kewell hefur gert þriggja ára samning við tyrkneska félagið Galatasaray.
Kewell hefur verið að leita sér að nýju félagi í sumar eftir að samningur hans við Liverpool rann út.
Portsmouth og Roma höfðu verið orðuð við þennan 29 ára gamla leikmann en hann ákvað að semja við Galatasaray og var tilkynnt um samninginn á heimasíðu félagsins í kvöld.
Kewell hefur undanfarin fimm tímabil leikið með Liverpool en á tíma sínum hjá félaginu var hann oftar en ekki meiddur.
Áður var Kewell á mála hjá Leeds þar sem hann sló í gegn og skoraði 45 mörk í 181 leik.


