Heimild: Sky
Umboðsmaður Ronaldinho segir að það séu 90 prósent líkur á því að leikmaðurinn gangi í raðir AC Milan.
Ronaldinho hefur fengið leyfi til að fara frá Barcelona fyrir rétta verðið í sumar.
Manchester City hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á þessum 28 ára gamla leikmanni.
,,Það er rétt, það er líklegt að hann fari til Milan," sagði Roberto de Assis umboðsmaður og bróðir Ronaldinho.
,,Það er allt klárt og það eru 90 prósent líkur á því að hann fari þangað."




