Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Afturelding fær ÍR í heimsókn í kvöld í toppslagnum í annarri deild karla. Því er tilvalið að kíkja á steminguna hjá þessum liðum í dag.
Albert Ásvaldsson fyrirliði Mosfellinga svaraði nokkrum spurningum.
Hvernig er stemmningin hjá Aftureldingu þessa dagana?
Stemningin í Mosó er frábær. Mórallinn í liðinu er góður, menn eru samstilltir og ætla sér stóra hluti í sumar. Svo hefur verið haldið vel utan um liðið og er stemningin á heimaleikjunum búin að vera ótrúlega góð.
Hvernig er stemningin fyrir leiknum í kvöld?
Hún er góð. Svona leikir eru þeir skemmtilegustu. Þetta verður hörkuslagur, menn eru búnir að bíða eftir þessum leik í þó nokkurn tíma.
Hefur þú séð mikið til ÍR í sumar?
Ég hef ekki séð einn einasta leik með ÍR í sumar. Reyndar hef ég nú bara ekki farið á neinn leik þetta sumarið. Maður þekkir nú samt nokkra þarna og veit hvernig bolta þeir eru að spila. Þetta er gott lið og það verður gaman að taka á móti þeim í kvöld.
Er mikill fótboltaáhugi í Mosfellsbæ?
Áhuginn er mikill og er bara að aukast. Þetta helst í hendur með árangri. Maður finnur fyrir meiri spenningi í ár heldur en þau síðustu.
Það hefur gengið frábærlega hjá okkur og ekki skemmir fyrir að mfl. kvenna er að gera góða hluti í úrvalsdeildinni.
Er leikmannahópurinn mikið breyttur frá því í fyrra?
Kjarninn er sá sami en það hafa orðið nokkrar breytingar. Við misstum nokkra, t.d. Gunna Borgþórs, sem er sterkur leikmaður. Svo sterkur að hann rústaði nú Balla Hallgríms fyrirliða ÍR í sjómann hér um árið.
En þó við höfum misst nokkra lykilmenn þá hafa aðrir komið í staðinn og ég held satt að segja að liðið í dag sé mun sterkara en í fyrra.
Fyrstu þrír heimaleikir ykkar í sumar hafa farið fram á gervigrasi. Munu allir heimaleikir ykkar fara fram á gervigrasi í sumar?
Já. Varmárvöllur er skelfilegur eins og er, því miður. Hins vegar hentar okkur mjög vel að spila á rennisléttu grasi þannig að þetta er bara búið að vera fínt.
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Að sjálfsögðu. Við erum taplausir á toppnum ásamt ÍR, maður biður ekki um mikið meira.
Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Við erum með stóran og góðan hóp og liðsheildin er góð. Það besta er samt að liðið gefst aldrei upp.
Hvert er markmið liðsins í sumar?
Upp í 1. deild, engin spurning.
Hefur eitthvað komið þér á óvart í byrjun móts í annarri deildinni?
Ég bjóst við Hvöt sterkari. Annars eru allir leikir í þessari deild erfiðir og allt getur gerst.
Eitthvað að lokum?
Það verður erfiður leikur í kvöld svo ég hvet alla mosfellinga til að mæta og styðja við bakið á okkur og halda áfram þeirri góðu stemningu sem búin er að vera á leikjunum í sumar.
Takk fyrir stuðninginn og ÁFRAM AFTURELDING!
Eldra úr liðnum hvað er að frétta?
1.deild:
KA (27.júní)
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
Þór (27.júní)
2.deild:
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)
3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Spyrnir (1.júlí)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)



