Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Florent Sinama Pongolle til Atletico Madrid (Staðfest)
Atletico Madrid hefur keypt franska framherjann Florent Sinama Pongolle frá Recreativo Huelva.

Pongolle, sem er 23 ára, hefur gert fjögurra ára samning við Atletico Madrid en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Þessi fyrrum leikmaður Liverpool skoraði 22 mörk á tveimur tímabilum með Recreativo en þessi félagaskipti hans til Atletico hafa verið í pípunum í sumar og nú er allt klappað og klárt.

Atletico Madrid mun taka þátt í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir að hafa endað í fjórða sæti á síðustu leiktíð en félagið hefur verið að styrkja sig í sumar.

Auk Pongolle hafa varnarmennirnir Tomas Ujfalus og John Heitinga einnig samið við Atletico í sumar.
Slapp
banner