Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Nýliðar WBA kaupa varnarmann frá Heerenveen (Staðfest)
West Bromwich Albion hefur fest kaupa á hollenska varnarmanninum Gianni Zuiverloon en hann kemur frá Heerenveen á 3,2 milljónir punda og mun styrkja liðið sem vann sér í vor sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur gert þriggja ára samning við WBA með möguleika á framlengingu.

Zuiverloon hefur leikið 17 landsleiki með U21 árs landsliði Hollendinga og hann er í hópnum sem fer á Ólympíuleikana í ágúst.

,,Við höfum mjög hæfileikaríkan, ungan fótboltamann sem er ákveðinn í að sanna gæði sín á hæsta stigi," sagði Tony Mowbray stjóri WBA.

,,Hann hefur góða varnareiginleika, er góður íþróttamaður, er góður á bolta og vill bæta sig," sagði Mowbray sem vonast til að styrkja hópinn meira áður en enska úrvalsdeildin hefst.
Slapp
banner