Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Spánverjar fagna fyrir aftan Schweinsteiger í viðtali (Myndband)
Spánverjar urðu Evrópumeistarar síðastliðið sunnudagskvöld en liðið sigraði Þjóðverja 1-0 í úrslitaleik eins og kunnugt er.

Bastian Schweinsteiger leikmaður þýska landsliðsins mætti í viðtal eftir leikinn en hann hefur væntanlega ekki verið paránægður þegar að Spánverjar byrjuðu að hlaupa fram og til baka fyrir aftan hann, syngjandi og trallandi.

Nokkrir leikmenn spænska liðsins komu hlaupandi í röð fyrir aftan Schweinsteiger, syngjandi 'Viva Espana' og aðra sigursöngva til að strá salti í sárin hjá Þjóðverjum.

Myndband náðist af atvikinu en hægt er að sjá það á Youtube.

Smelltu hér til að sjá myndbandið af Spánverjunum fagnandi fyrir aftan Schweinsteiger
Slapp
banner
banner
banner