Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður Breiðabliks var að vonum glaður eftir að liðið lagði Val af velli 1-0 í VISA-bikarnum í kvöld. Jóhann skoraði eina mark leiksins beint úr aukaspyrnu í síðari hálfleik.
,,Ég er mjög er ánægður með úrslitin, við komum vel stefndir til leiks og byrjuðum strax frá fyrstu mínútu. Við vissum að Valur myndu byrja a fullu og við mættum þvíi vel stemmdir til leiks. Við spiluðum miklu betur en Valur allan tímann og áttum þetta algjörlega skilið," sagði Jóhann Berg í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn
Hann var ánægður með frammistöðu sína í leiknum. ,,Ég get ekki sagt annað en að ég hafi verið mjög ánægður með frammistoðu mína," sagði Jóhann sem hefur verið að spila frammi í síðustu leikjum og líkar það vel.
,,Mér finnst mjög skemmtilegt að spila frammi, ég er svona meira laus og mjög gott að vinna i kringum Marel, hann er frábær leikmaður."
Hann segist ekki hafa ætlað að setja´nn undir veggin. ,,Ég verð að vera hreinskilinn, ég ætlaði ekki að setja´nn þarna en hann fór i netið og það er það eina sem skiptir máli," sagði Jóhann sem segir það léttir að hafa náð að brjóta ísinn.
,,Það er mikill léttir að skora mitt fyrsta mark, ég er búinn að biða ansi lengi eftir þessu en ég er mjög ánægður að hafa skorað i dag og komið okkur áfram," sagði Jóhann sem á sér enga óska mótherja.
,, Ég á nú enga óskamótherja, ef við spilum eins og við gerðum í dag getum við unnið alla þannig mér er sama hverja við fáum," sagði Jóhann að lokum.




