Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 03. júlí 2008 23:21
Gísli Þórarinsson
Kristján Guðmundsson: Sýndum að við getum unnið þá
Kristján fór með sigur af hólmi í viðureigninni við Heimi Guðjónsson og félaga í FH í kvöld.
Kristján fór með sigur af hólmi í viðureigninni við Heimi Guðjónsson og félaga í FH í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur sagði eftir 3-1 sigur liðsins á FH í 16 liða úrslitum VISA-bikarsins að hans menn hafi sýnt að þeir geti lagt FH og það geri þá tilbúna í leik liðanna í Landsbankadeildinni á sunnudag.

FH-ingar sóttu stíft fyrstu 25 mínúturnar en náðu ekki að skora, það gerðu Keflvíkingar hinsvegar þvert gegn gangi leiksins.

,,Kannski vorum við tilbúnir til að setja boltann í markið frekar en þeir, það er alveg rétt að þeir áttu fín færi í byrjun og með meiri einbeitingu hefðu þeir skorað, en einbeitingin var hjá okkur þegar að við fengum færin og við settum boltann í markið," sagði Kristján við Fótbolta.net eftir leik.

Patrik Redo skoraði þriðja og síðasta mark Keflvíkinga í leiknum en þrátt fyrir mikið af færum hafði honum fram að því ekki tekist að skora á heimavelli.

,,Loksins skoraði hann á heimavelli já, þetta er þriðja markið hans fyrir okkur og mikill léttir fyrir okkur öll, hann og okkur öll sem komum að þessu í Keflavík að hann skyldi loksins skora, nú líður honum aðeins betur," sagði Kristján.

Liðin mætast svo aftur að nýju á sunnudag en þá í Landsbankadeildinni, Kristján segir þann leik leggjast vel í sig.

,,Bara nokkuð vel, við erum búnir að sýna það að við getum lagt þá að velli og og nú þurfum við bara að gera okkur tilbúna til að taka á móti þeim aftur af sama krafti og við gerðum síðustu 70 mínúturnar á leiknum," sagði hann að lokum.
Slapp
banner