Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 23:20
Gísli Þórarinsson
Umfjöllun: Keflvíkingar slógu bikarmeistarana út
Einar Orri Einarsson skallar boltann í leiknum í kvöld.
Einar Orri Einarsson skallar boltann í leiknum í kvöld.
Mynd: Víkurfréttir - Þorgils
Patrik Redo innsiglar 3-1 sigur Keflvíkinga.....
Patrik Redo innsiglar 3-1 sigur Keflvíkinga.....
Mynd: Víkurfréttir - Þorgils
....og fagnar marki sínu.
....og fagnar marki sínu.
Mynd: Víkurfréttir - Þorgils
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Keflavík 3 - 1 FH
1-0 Guðmundur Steinarsson
2-0 Guðjón Árni Antoníusson
2-1 Matthías Vilhjálmsson
3-1 Patrik Redo

Keflvíkingar fengu bikarmeistara FH í heimsókn í 16 liða úrslitum í kvöld á sparisjóðsvellinum. Aðstæður til knattspyrnu voru mjög góðar, veðrið fínt og völlurinn sjaldan litið eins vel út.

Stuðningsmannasveitirnar voru mættar vel stemmdar og ríkti skemmtilegur andi í stúkunni, Pumasveitin og Mafían stýrðu sínu stuðningsfólki af miklum sóma og gerðu skemmtilegan leik ennþá skemmtilegri.

FH ingar voru sprækari fyrstu mínúturnar og fengu fyrsta færi sitt á 11. mínútu þegar Tommy Nielsen átti sendingu frá miðju vallarins inn á teig Keflvíkinga vinstra megin en boltinn aðeins of fastur fyrir Atla Guðnason sem rétt náði að setja tánna í hann og útaf.

Á 14. mínútu áttu FH ingar svo aðra hættulega sókn þegar Davíð Viðarsson sendi boltann fyrir og eftir mikið klafs í teig heimamanna fékk Davíð boltann aftur en skaut hátt yfir úr ákjósanlegu færi.

Á 17. mínútu vann Simun Samuelson boltann á miðsvæði síns vallarhelmings og rauk upp hægri kantinn, Keflvíkingar 2 á móti 2 varnarmönnum FH inga, Simun rak boltann aðeins of langt frá sér og Freyr Bjarnason kom aðvífandi en sparkaði boltann í Simun sem komst áfram upp kantinn, Guðmundur Steinarsson beið á fjær eftir sendingu en loksins þegar að hún kom var Tommy Nielsen rétti maður á réttum stað og kom boltanum af hættusvæði.

Mínútu síðar kom svo Guðmundur Steinarsson Keflavík yfir þvert gegn gangi leiksins þegar að hann fékk stungusendingu inn fyrir vörnina hægra megin við vítateiginn og lagði boltann laglega framhjá Daða markverði FH.

Eftir þetta dalaði töluvert í sóknartilburðum FH og Keflvíkingar sóttu í sig veðrið og á 24. mínútu skoruðu þeir annað mark sitt í leiknum. Guðmundur Sævarsson í vörn FH átti slæma sendingu sem Simun komst inn í. Simun spilaði boltann út á vinstri kantinn á Redo sem lagði hann aftur á Simun, Simun reyndi skot en hitti boltann illa og beint á Guðjón Árna Antoníusson sem gerði vel í að stinga sér með boltann innfyrir og lagði hann snyrtilega framhjá Daða. Keflvíkingar komnir með tveggja marka forystu.

Tveimr mínútum síðar komst Atli Guðnason í liði FH upp vinstri kantinn og sendi boltann inn í teig, þar var Matthías Guðmundsson var mættur en hann skaut boltanum framhjá.

Næstu 16 mínúturnar sóttu liðin til skiptis þó án þess að skapa sér einhver umtalsverð færi.

Á 42. mínútu sótti Guðmundur Sævarsson upp hægri kantinn og sendi boltann fyrir en boltinn stefndi beint á markið og Ómar Jóhannsson gerði vel í að slá knettinum yfir.
FH fékk tvær hornspyrnur í kjölfarið en ekkert varð úr þeim.

Garðar Örn Hinriksson flautaði svo til hálfleiks.

Keflvíkingar gerðu eina skiptingu í hálfleik. Hörður Sveinsson kom inn fyrir Magnús Þorsteinsson.

Bæði lið sóttu til skiptis í upphafi síðari hálfleiks og það liðu 10 mínútur þangað til að eitthvað markvert gerðist. Patrik Redo fékk boltann fyrir framan vítateig FH, rak knöttinn framhjá varnarmanni FH og var kominn á ágætt skotfæri en Daði gerði vel og varði í horn.

Á 58. mínútu sóttu Keflvíkingar að marki FH, boltinn barst inn í teig en varnarmenn reyndu að hreinsa frá en boltinn beint á Hörð Sveinsson sem renndi boltanum innfyrir vörnina á Hólmar en skot hans framhjá markinu.

Á 65. mínútu gerðu heimamenn eina skiptingu, Þórarinn Kristjánsson kom inn fyrir Guðmund Steinarsson og fyrir FH komu Tryggvi Guðmundsson og Arnar Gunnlaugsson in fyrir þá Jónas Grana Garðarsson og Matthías Guðmundsson.

Töluvert líf færðist í líf FH með tilkomu Arnars og Tryggva, á 68 mín átti Tryggvi góða fyrirgjöf á Davíð Viðars en skalli hans fór yfir markið. Davíð fór illa með mjög gott færi, einn og óvaldaður inn í teig Keflavíkur en færið kannski lýsandi fyrir seinheppni FH-inga fyrir framan mark heimamanna.

Matthías Vilhjálmsson kom svo inná 75. mínútu fyrir Frey Bjarnason í liði FH.

Atli Guðnason komst í ákjósanlegt færi á 81. mínútu en Ómar markvörður Keflvíkinga átti ekki í vandræðum með að verja laust skot hans.

Davíð Þór fékk aftur sendingu af vinstri kanti frá Tryggva en aftur skallaði hann boltann yfir markið. Töluverður sóknarþungi var kominn í lið FH og Keflvíkingar reyndu allt til að bægja hættunni frá.

FH sótti á kostnað varnarinnar og munaði litlu að Hallgrímur Jónasson skoraði 3ja mark Keflavíkur þegar að hann fékk sendingu inn í teig frá Simun sem geystist upp hægra megin, komst að endalínu og átti góða sendingu á Hallgrím en skot hans flaug yfir.

FH skoraði loks mark eftir mikið klafs í vítateig Keflvíkinga, Arnar Gunnlaugs átti skot í varnarmann á marklínu, boltinn barst til Matthíasar Vilhjálmssonar sem setti boltann í fjær hornið.

Keflvíkingar bökkuðu vel aftur og FH fór framar með lið sitt í þeirri von að jafna en Keflvíkingar skoruðu 3ja markið þegar að Patrik Redo beið átektar vinstra megin á kantinum, FH ingar misstu boltann, Keflvíkingar voru snöggir að hugsa og sendu boltann beint á Redo sem komst einn innfyrir og setti boltann í gegnum klofið á Daða Lárussyni og tryggði Keflvíkingum farseðillinn í 8 liða úrslit.

FH ingar reyndu hvað þeir gátu til þess að klóra í bakkann en Garðar Örn Hinriksson góður dómari leiksins flautaði af og þar með bikarvonir FH inga.

Keflavík: Ómar Jóhannsson, Guðjón Antoníusson, Kenneth Gustafsson, Guðmundur Steinarsson (Þórarinn Kristjánsson 65) Símun Samuelsen, Magnús Þorsteinsson (Hörður Sveinsson 45), Einar Orri Einarsson, Brynjar Guðmundsson, Patrik Redo, Hallgrímur Jónasson, Hólmar Örn Rúnarsson
Ónotaðir varamenn; Árni Freyr Ásgeirsson, Bessi Víðisson, Magnús Matthíasson, Sigurbergur Elísson, Högni Helgason.

FH; Daði Lárusson, Dennis Siim, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason (Matthías Vilhjálmsson 75), Jónas Grani Garðarsson (Tryggvi Guðmundsson 65), Davíð Þór Viðarsson, Atli Guðnason, Guðmundur Sævarsson, Matthías Guðmundsson (Arnar Gunnlaugsson 65) Atli Viðar Björnsson, Hjörtur Logi Valgarðsson
Ónotaðir varamenn: Gunnar Sigurðsson, Höskuldur Eiríksson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Heimir Snær Guðmundsson.
Slapp