Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 03. júlí 2008 23:23
Gísli Þórarinsson
Heimir Guðjónsson: Dýrkeypt að gera mistök
Heimir Guðjónsson þjálfari FH.
Heimir Guðjónsson þjálfari FH.
Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Heimir Guðjónsson þjálfari FH var að vonum svekktur eftir 3-1 tap liðsins gegn Keflavík í 16 liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld en þar með er ljóst að FH nær ekki að verja bikarmeistaratitilinn sem þeir unnu á síðasta ári. Við spurðum hann eftir leik hvort hann væri ekki svekktur.

,,Já ég er það, það er alltaf leiðinlegt að detta úr bikarkeppninni sem ríkjandi meistarar, þannig að það er bara ennþá meira svekkjandi," sagði Heimir við Fótbolta.net eftir leikinn.

FH sótti án afláts fyrstu 25 mínúturnar en fengu svo hálfgert kjaftshögg þegar Keflavík náði forystunni í leiknum og bætti svo örðu marki við ekki löngu síðar og FH-ingar virtust hálf vankaðir.

,,Fyrstu 15 - 20 mín þá var bara eitt lið á vellinum og eins og þú segir það er dýrkeypt að gera mistök eins og við gerðum, bæði í fyrsta og öðru markinu og það kostaði okkur í dag þó svo sem að við í seinni hálfleik, sérstaklega þegar leið á leikinn þá áttum við ágætis færi en náðum ekki að nýta þau," sagði Heimir.

FH minnkaði muninn í 2-1 þegar stutt var eftir af leiknum en Keflvíkingar voru fljótir að svara fyrir sig með marki Patrik Redo. ,,Í stöðunni 2 – 1, gerði maður sér einhverjar vonir en hann kláraði leikinn en mér fannst rangstöðulykt af þessu en klaufaleg mistök af okkar hálfu," sagði Heimir.

Liðin mætast svo aftur á sunnudag í Landsbankadeildinni og að lokum spurðum við Heimi út í þann leik. ,,Hann leggst vel í mig, við verðum að gera betur í þeim leik en í kvöld og það hlýtur að vera markmiðið," sagði Heimir að lokum.
Slapp
banner
banner