Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Dregið í 8-liða úrslit Visa-bikars í dag - Beint á Fótbolta.net
Kvenaboltinn
Keflvíkingar, bikarmeistararnir frá 2006, eru í pottinum.
Keflvíkingar, bikarmeistararnir frá 2006, eru í pottinum.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Bikarmeistarar KR koma inn í keppnina í 8-liða úrslitunum.
Bikarmeistarar KR koma inn í keppnina í 8-liða úrslitunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið verður í 8-liða úrslit í Visa-bikar karla og kvenna í hádeginu í dag. Í karlaflokki eru sex lið úr Landsbankadeildinni í pottinum en auk þeirra eru Haukar og Víkingur R. úr fyrstu deild.

Í kvennaflokki eru sjö lið úr Landsbankadeildinni sem og lið ÍA úr fyrstu deild. Fjögur efstu liðin frá því í Landsbankadeild kvenna koma inn í keppnina í 8-liða úrslitunum.

Bein textalýsing verður frá drættinum á Fótbolta.net í dag en lýsingin hefst um 11 leytið. Drátturinn verður síðan skömmu eftir klukkan 12.

Liðin í pottinum í karlaflokki:
Keflavík
KR
Breiðablik
Fjölnir
Grindavík
Fylkir
Haukar
Víkingur R.

Liðin í pottinum í kvennaflokki:
Valur
KR
Breiðablik
Stjarnan
Keflavík
Fylkir
Þór/KA
ÍA
Slapp
banner