Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 06:00
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Pique ánægður með félagsskiptin til Barcelona
Gerard Pique er hæstánægður með félagsskipti sín frá Manchester United til Barcelona og segir að hann vilji ljúka ferli sínum hjá Barca.

Pique gekk til liðs við United frá Barcelona árið 2004, en skrifaði nýverið undir fjögurra ára samning við þá spænsku.

Hann segist ekki sjá eftir neinu á ferlinum og segir að þetta sé draumur að rætast.

,,Ég er mjög ánægður að geta komið aftur heim. Það er draumur að koma aftur heim," sagði Pique.

,,Þegar að ég var 17 ára gamall tók ég þá ákvörðun að fara af því að þegar að þú ert ungur dreymir þér um að spila fótbolta, síðan spila fyrir Barca."

,,Í dag hefur þetta orðið að veruleika. Ég er stoltur og ennfremur ánægður. Ég myndi glaður vilja ljúka knattspyrnuferli mínum hér," bætti Pique við.
Slapp
banner
banner
banner