Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 09:47
Gunnar Gunnarsson
Marvin Emnes til Middlesbrough (Staðfest).
Middlesbrough hefur gengið frá kaupum á framherjanum Marvin Emnes frá hollenska liðinu Sparta Rotterdam.

Hinn tvítugi Marvin Emnes var keyptur á 4 milljónir evra og skrifaði undir fjögra ára samning við Middlesbrough eftir að hafa staðist læknisskoðun.

Emnes náði að vekja athygli margra stórliða í Evrópu eftir að hafa skorað 8 mörk í 26 leikjum á síðustu leiktíð en einnig var kappinn útnefndur leikmaður ársins af stuðningsmönnum Spörtu.

Middlesbrough hafa hins vegar unnið í kapphlaupinu um að klófesta pilt og er þjálfari liðsins Gareth Southgate afar ánægður með kaupin.
,,Við teljum okkur hafa samið við mjög ungan og spennandi leikmann," sagði Southgate í viðtali á opinberri heimasíðu félagsins.
,,Marvin er mjög spenntur fyrir því að koma til Englands og takast á við þá áskorun að leika í ensku úrvalsdeildinni.

,,Hann uppfyllir einnig öll þau skilyrði sem við erum að leitast eftir, hann er ungur, hungraður í að spila, með mikla orku og hraða," sagði Gareth Southgate að lokum.
Slapp
banner
banner