Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 09:59
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Powerade slúðrið: Hvað gera Ronaldo, Adebayor og Barry?
Það er nóg af slúðri í dag eins og endranær. Framhaldssagan um Cristiano Ronaldo heldur áfram og þá er rætt um framtíð Emmanuel Adebayor og Gareth Barry svo eitthvað sé nefnt.



Arsenal hefur fengið lokatilboð í Emmanuel Adebayor frá Barcelona en tilboðið hljóðar upp á 30 milljónir punda. (Ýmsir miðlar)

Arsenal er tilbúið að selja Adeabayor en félagið ætlar að fá Roque Santa Cruz frá Blackburn í hans stað. (Guardian)

Vonir Arsenal um að fá Marcos Senna eru litlar eftir að Villareal henti 25 milljóna punda verðmiða á kappann. (Daily Star)

Liverpool ætlar ekki að bjóða 18 milljónir punda í Gareth Barry en það er upphæðin sem Aston Villa vill fá fyrir leikmanninn. Félagið ætlar að bjóað fimmtán milljónir punda en í því tilboði verða klásúlur sem geta hækkað verðið síðar meir. (The Sun)

Martin O'Neill mun nota peninginn sem hann fær fyrir Barry til að kaupa David Bentley, Steve Sidwell, Anton Ferdinand og markvörð. (Daily Star)

Cristiano Ronaldo hefur ekki bætt samband sitt við Manchester United með því að segja portúgalska knattspyrnusambandinu að ráða Carlos Queiroz sem landsliðsþjálfara. (Daily Mail)

Elma Aveiro, stóra systir Ronaldo, segir að leikmaðurinn verði áfram hjá Manchester United. (The Sun)

Real Madrid hefur ekki gefist upp í baráttunni um Ronaldo og þá er félagið einnig á eftir Didier Drogba. (Daily Mirror)

Roy Keane stjóri Sunderland er klár með tíu milljóna punda tilboð í Stephen Hunt og Kevin Doyle leikmenn Reading. (Ýmsir miðlar)

Everton er á eftir franska U21 árs landsliðsmanninum Sebastien Bassong en félagið gæti fengið hann á tvær milljónir punda frá Metz. (Daily Mirror)

Everton er einnig á eftir Mehmet Aurelio eftir að félagaskipti hans til Real Betis gengu ekki í gegn. (Daily Telegraph)

Hull City ætlar að reyna að fá Roy Makaay framherja Feyenoord en hann er metinn á 1,5 milljónir punda. (Daily Mirror)

Kevin Keegan stjóri Newcastle hreifst af Gokhan Inler leikmanni Sviss á EM og ætlar að reyna að fá hann frá Udinese. (Daily Mirror)

Spartak Moskva hefur hafnað 10 milljóna punda tilboði frá Tottenham í framherjann Roman Pavlyuchenko. (Daily Mirror)

Manchester City vill svar frá Ronaldinho hvort hann muni koma til félagsins eða ekki (Ýmsir miðlar)

Ipswich er á eftir gríska framherjanum Angelo Charisteas. (The Sun)

Mike Ashley eigandi Newcastle er tilbúinn að selja félagið til fjárfesta í New York á 420 milljónir punda. (The Sun)

Real Mallorca vill fá skaðabætur eftir að Jonas Gutierrez keypti upp samninginn sinn og fór til Newcastle. (Ýmsir miðlar)
Slapp
banner
banner
banner