Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 10:26
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Mourinho hefur ekki áhuga á Arshavin
Jose Mourinho stjóri Inter segir það ólíklegt að hann muni reyna að fá Andrei Arshavin leikmann Zenit.

Mörg stærstu lið Evrópu hafa verið orðuð við Arshavin en Mourinho er ekki viss um hvort hann sé nægilega góður.

,,Arshavin er fínn leikmaður en hefur hann nægilega mikinn stöðuleika til þess að spila í sterkustu deildunum," sagði Mourinho.

,,Á EM sýndi hann góðan leik gegn Svíum og Hollendingum en það var eins og það væri slökkt á honum gegn Spánverjum."

,,Hjá Inter leitum við af leikmönnum sem geta spilað á meðal þeirra bestu, ekki bara góðir í tvo eða fimm leiki heldur allt tímabilið,"
sagði Mourinho.
Slapp
banner
banner