Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 10:41
Hafliði Breiðfjörð
ReyCup 2008, lokadagur skráninga 8.júlí
Michael Platini, forseti UEFA afhendir verðlaun á helstu stórmótum Evrópu eins og á EM núna í júní og á ReyCup 2007.
Michael Platini, forseti UEFA afhendir verðlaun á helstu stórmótum Evrópu eins og á EM núna í júní og á ReyCup 2007.
Mynd: Þróttur
Nú eru aðeins um 3 vikur í að ReyCup hefjist og hver að verða síðastur að skrá sig. Skráningum keppnisliða lýkur þriðjudaginn 8.júlí. Nú þegar hafa fleiri lið skráð sig en nokkru sinni fyrr.

Í fyrra tóku um 900 leikmenn þátt og reiknað er með að þeir verði um 950 í ár. Í fyrsta skipti í 7 ára sögu ReyCup koma lið frá risaknattspyrnuþjóðunum Þýskalandi og Frakklandi. Alls koma á þessa alþjóðlegu knattspyrnuhátíð lið frá 5 löndum.

Leikið er á völlunum í Laugardalnum og fara gestirnir í sundlaugapartý í Laugardalslaug og í grillveislu í fjölskyldu & húsdýragarðinum svo eitthvað sé nefnt. Skráning liða er sem sagt á lokastigi og eru á milli 60 og 70 lið þegar skráð.

Skráningar fara fram á heimasíðunni www.reycup.is

Michael Platini, forseti UEFA afhendir verðlaun á helstu stórmótum Evrópu eins og á EM núna í júní og á ReyCup 2007.
Slapp
banner
banner