Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 11:15
Magnús Már Einarsson
Drátturinn í 8-liða úrslitum Visa-bikars karla og kvenna
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í hádeginu í dag verður dregið í 8-liða úrslit í Visa-bikar karla og kvenna. Bein textalýsing verður frá drættinum hér á Fótbolta.net.

Drátturinn í karlaflokki:
Fjölnir - Víkingur R.
Breiðablik - Keflavík
Haukar - Fylkir
KR - Grindavík

Drátturinn í kvennaflokki:
Þór/KA - Breiðablik
Stjarnan - ÍA
Fylkir - KR
Valur - Keflavík


12:14: Fjölnismenn fá heimaleik gegn Víkingi Reykjavík.

12:13: Breiðablik kemur upp úr pottinum. Sonur Ólafs Kristjánssonar dregur Keflavík upp úr pottinum en þessi lið mættut einnig í 8-liða úrslitum í fyrra.

12:13: Nú koma Haukar upp úr pottinum og þeir fá Fylki.

12:12: Þá er komið að karlaflokki. KR kemur fyrst upp úr pottinum og Þórhallur Dan biður Jónas Kristinsson um að draga Haukar upp úr pottinum. Þórhalli verður ekki að ósk sinni því Grindavík kemur upp. KR - Grindavík.

12:12: Ljóst er hvaða lið mætast í kvennaflokki.
Þór/KA - Breiðablik
Stjarnan - ÍA
Fylkir - KR
Valur - Keflavík

12:12: Valur fær Keflavík í heimsókn en leikirnir í 8-liða úrslitum kvenna fara fram 18.júlí.

12:11: Fylkir mætir KR í Árbænum.

12:10: Stjarnan fær heimaleik og Sandra Sigurðardóttir markvörður liðsins dregur 1.deildarlið ÍA upp úr pottinum.

12:09: Fyrsta liðið sem kemur upp úr pottinum í kvennaflokki er Þór/KA. Fulltrúi þeirra dregur Breiðablik upp úr pottinum.

12:08: Geir Þorsteinsson formaður KSÍ og Höskuldur Ólafsson frá VISA aðstoða við dráttinn.

12:07: Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri heldur stutta tölu og í kjölfarið fer drátturinn að byrja í kvennaflokki.

12:00: Haukar eru léttir í lundu enda komnir í 8-liða úrslit bikarsins annað árið í röð. Óskamótherjarnir hjá Þórhalli Dan fyrirliða eru KR í Frostaskjóli....,,fyrst að FH eru dottnir út," segir hann léttur í bragði.

11:58: Um tiu mínútur eru í að drátturinn hefjist en fyrst verður boðið upp á veitingar eins og venjan er.

11:54: Það styttist í dráttinn og fulltrúar félaganna koma hver á eftir öðrum hingað í Laugardalinn.

11:47: Skagastúlkur eru mættar sem og þjálfari liðsins en þau búast við að mæta liði í Landsbankadeildinni í 8-liða úrslitunum....enda er liðið eina liðið úr fyrstu deild í pottinum.

11:42: Í kvennaflokki hafa Valur, Breiðablik, ÍA og KR unnið bikarinn áður en Stjarnan, Keflavík, Þór/KA og Fylkir hafa aldrei hampað bikarnum og eiga nú möguleika á að vinna hann í fyrsta sinn.

11:40: Fjögur lið í pottinum í karlaflokki hafa áður orðið bikarmeistarar. Keflavík, KR, Fylkir og Víkingur R. hafa unnið bikarinn áður en Fjölnir, Breiðablik, Grinavík og Haukar hafa aldrei orðið bikarmeistarar áður.

11:27: Í kvennaflokki er eitt lið úr fyrstu deild, en ÍA er í pottinum ásamt sjö liðum úr Landsbankadeildinni.

11:23: Í Visa-bikar karla eru tvö lið úr fyrstu deild í pottinum, Haukar og Víkingur Reykjavík.

11:18: Í Visa-bikar kvenna koma Valur, KR, Breiðablik og Keflavík inn í keppnina núna í 8-liða úrslitunum. KR og Keflavík mættust í bikarúrslitaleiknum í fyrra en þar höfðu stúlkurnar úr Vesturbæ betur.

11:15: Góðan daginn! Velkominn í beina textalýsingu frá drættinum í 8-liða úrslitum Visa-bikars karla og kvenna.

Liðin í pottinum í karlaflokki:
Keflavík
KR
Breiðablik
Fjölnir
Grindavík
Fylkir
Haukar
Víkingur R.

Liðin í pottinum í kvennaflokki:
Valur
KR
Breiðablik
Stjarnan
Keflavík
Fylkir
Þór/KA
ÍA
Slapp
banner
banner