Marcos Senna, fyrirliði Villareal er í viðræðum við félagið um framlengingu á samning sinum.
Senna spilaði vel á nýliðnu Evrópumóti og varð hann Evrópumeistari með Spánverjum. Sagt er að frammistaða hans hafi heillað Arsenal.
Senna, sem var valinn í lið mótsins segir að hann vilji vera áfram hjá Villareal.
,,Ég hitti forseta Villareal á þriðjudaginn og við töluðum um tveggja ára framlengingu á samningi mínum," sagði Senna.
,,En ég vil fá hvíld núna. Ég er í fríi og ég ætla einnig að taka mér frí frá þessum hlutum."




