Haukar og Fylkir munu mætast í 8-liða úrslitum Visa-bikars karla en þetta varð ljóst eftir að dregið var í hádeginu í dag. Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis þarf ekki að fara langt því hann býr sjálfur í Hafnarfirði.
,,Mér líst svakalega vel á þetta, það er gott að búa á fleiri stöðum en í Kópavogi," sagði Leifur léttur í bragði við Fótbolta.net.
,,Haukar eru fínt lið. Ég er búinn að sjá þá í nokkrum leikjum í sumar og gamli skólabróðirinn (Andri Marteinsson) úr Kennaraskólanum er við stjórnvölinn þannig að það verður bara gaman að takast á við þetta."
Haukar leika leiki sína á gervigrasi en Leifur segir það ekki skipta neinu máli. ,,Það skiptir engu máli, auðvitað eru þeir vanari því ef eitthvað er en það eru ellefu á móti ellefu og mörk í báðum endum þannig að það á ekki að ráða úrslitum."
Haukar slógu HK út í 16-liða úrslitunum og í fyrra sló liðið Fram út og komst í 8-liða úrslitin.
,,Þeir eru með flott lið og marga unga og mjög efnilega stráka. Ég sá nokkra leiki með þeim í fyrra og aftur núna. Þeir hafa unnið góða sigra, komið til baka í leikjum og það er greinilega kraftur í liðinu hjá þeim," sagði Leifur að lokum við Fótbolta.net.


