Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 15:17
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Umboðsmaður: Nasri skrifar undir hjá Arsenal eftir 10 daga
Samir Nasri mun skrifa undir samning hjá Arsenal eftir um það bil tíu daga samkvæmt umboðsmanni leikmannsins.

Þessi leikmaður Mareille hefur verið sterklega orðaður við Arsenal og hefur Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal gríðarlega mikinn áhuga á miðjumanninum.

Marseille hefur fengið Hatem Ben Arfa til liðs við sig frá Lyon og mun hann líklega leysa Nasri af hólmi.

Jean-Pierre Bernes umboðsmaður Nasri segir að Nasri muni skrifa undir samning við Aresnal þegar að hann kemur úr fríi.

,,Hann (Nasri) er í fríi núna. Þau (félagsskiptin) munu fara fram þegar að hann kemur til baka, eða eftir um 10 daga," sagði Bernes.
Slapp
banner
banner