Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 12:49
Magnús Már Einarsson
Ólafur Kristjánsson: Ég er ofboðslega lélegur að draga
Sonur Ólafs les nafn Keflavíkur af miðanum eftir að hafa dregið.
Sonur Ólafs les nafn Keflavíkur af miðanum eftir að hafa dregið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við kláruðum Val í gær og Keflavík var eitt af þeim liðum sem eru á góðu skriði eins og við sáum í gær á móti FH. Þetta er erfiður andstæðingur, við erum nýbúnir að mæta þeim í deildinni í hörkuleik, þetta verður spennandi og það verður gaman að mæta þeim," sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Blika við Fótbolta.net eftir að liðið drógst gegn Keflavík í 8-liða úrsit í VIsa-bikarnum í dag.

Sonur Ólafs dró Keflavík upp úr hattinum í dag en hann sá einnig um að draga þegar Blikar mættu KA í 32-liða úrslitunum.

,,Ég er ofboðslega lélegur að draga og þá get ég haft einhvern til að benda á ef hann dregur illa. Formaðurinn dró síðast og hann dró Val sem var reyndar síðasta liðið í pottinum þannig að hann átti engra úrkosta völ. Sonurinn fær að draga, það skapaði lukku síðast, ég hef bara enga barnapössun þannig að hann þarf að koma með," sagði Ólafur létur í bragði.

Blikar unnu Keflavík 3-0 í 8-liða úrslitunum í fyrra en sá leikur fór einnig fram í Kópavogi.

,,Við fengum heimleik og það var leikur sem að fór vel fyrir okkur. Hvort það verður endurtekning á því veit ég ekkert um en þetta eru tvö lið sem vilja spila fótbolta og það er gaman af þeim leikjum, það verður áskorun að fá þriðja leikinn á tímabilinu við Keflavík," sagði Ólafur að lokum við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner
banner