Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 13:00
Magnús Már Einarsson
Þórhallur Dan: Gaman að taka á móti Fylki á teppinu í Hafnarfirði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhallur Dan Jóhannsson fyrirliði Hauka var ánægður eftir að ljóst var að liðið mun mæta Fylki í 8-liða úrslitum Visa-bikarsins. Óskamótherjar Þórhalls voru reyndar KR-ingar og hann bað Jónas Kristinsson formann KR-Sport meðal annars um að draga Hauka upp úr pottinum þegar sá síðarnefndi dró mótherja fyrir KR.

,,Ég vildi KR á KR-vellinum en úr því við fengum ekki KR þá er alveg eins gott að fá Fylki heima. Það er líka gaman að Hauka eru eina liðið úr Hafnarfirði sem eru í 8-liða úrslitunum," sagði Þórhallur Dan en honum líst vel á að mæta sínum gömlu félögum í Fylki.

,,Það verður gaman að taka á móti þeim á teppinu í Hafnarfirðinum," sagði Þórhallur en hann þekkir ennþá til hjá Fylki.

,,Ég þekki menn sem eru í kringum félagið en þara eru líka Valur Fannar, Kristján Valdimars, Óli Stígs og svo þekkir maður Fjalar og fleiri stráka. Ég þekki ekki þessa ungu stráka sem eru að koma upp, ég get sagt hæ við þá en er ekki kunnugur þeim."

Haukar eru annað árið í röð í 8-liða úrslitum en þeir slógu HK út í fyrrakvöld og eru hvergi bangnir.

,,Við förum í alla þessa leiki til að vinna. Við erum klárlega litla liðið og eigum kannski þannig lagað ekkert að komast áfram en við erum með gott lið og við förum í alla leiki til að finna. Við spilum sóknarbolta, þeir eru líklegri en við ætlum að reyna að láta þá hafa svolítið fyrir þessu," sagði Þórhallur að lokum við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner