Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 13:19
Magnús Már Einarsson
Jesper Tollefsen: Þeir eru líklegri en við eigum möguleika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þeir eru líklegri en ég tel að við eigum möguleika. Hversu stór möguleikinn er veit ég ekki en ef við hefðum ekki trú á verkefninu væri enginn tilgangur í að fara þangað. Við munum fara þangað og reyna að komast í næstu umferð," sagði Jesper Tollefsen þjálfari Víkings eftir að ljóst var að liðið mun mæta Fjölni á útivelli í 8-liða úrslitum Visa-bikarsins.

,,Auðvitað hefði verið betra að fá heimaleik en svona er þetta og við verðum bara að fara þangað og gera okkar besta."

Fjölnir og Víkingur gerðu 1-1 jafntefli í vetur í Lengjubikar en Jesper segir að lítið sé hægt að dæma út frá því.

,,Við mættum þeim einu sinni í vetur en sá leikur var utandyra í gífurlegu roki svo ég held að það sé ekki hægt að dæma mikið út frá þeim úrslitum."

,,Ég hef séð þá nokkrum sinnum en við höfum svolítinn tíma til að skoða þá betur áður en við mætum þeim,"
sagði Jesper að lokum við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner
banner