Guðmundur Steinarsson fyrirliði Keflavíkur segir það krefjandi verkefni að mæta Blikum í átta liða úrslitum VISA-bikarsins.
Dregið var í átta liða úrslitin í dag þar sem Breiðablik og Keflavík munu mætast 24. júlí.
,,Þetta er bara fínn dráttur, maður hefði auðvitað kosið að fá heimaleik en það er bara þannig að það þarf að vinna alla leiki ef maður ætlar í úrslitin og þetta er bara næsta verkefni," sagði Guðmundur í samtali við Fótbolta.net eftir dráttinn.
Þessi lið mættust á sama stað í keppninni í fyrra á Kópavogsvelli og þá unnu Blikar sannfærandi, 3-1 sigur.
,,Við eigum harma að hefna, þetta er kannski ákveðin hefnd sem við getum náð núna en ég efa það að það verði eitthvað ofarlega í huga okkur þegar kemur í leikinn, þá er það bara að vinna."
Guðmundur segir ekkert annað koma til greina en að fara alla leið. ,,Að sjálfsögðu ætlum við okkur alla leið, annars værum við ekki í þessu," sagði Guðmundur að lokum.


