Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 13:29
Hörður Snævar Jónsson
Orri Freyr: Getum vel unnið KR á útivelli á góðum degi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Freyr Hjaltalín var þokkalega sáttur með að fá KR í átta liða úrslitum VISA-bikarsins en dregið var í dag. Allir fjórir leikirnir fara fram þann 24 júlí.

,,Þetta er bara ljómandi góður dráttur í alla staði," sagði Orri í samtali við Fótbolta.net eftir dráttinn.

Hann segist ekkert frekar hafa viljað fá heimaleik. ,,Okkur hefur ekkert gengið það vel á heimavelli í sumar að það skiptir kannski ekki öllu máli," sagði Orri.

Grétar Ólafur Hjartarson sem fær leikheimild með Grindavík þann 15. júlí getur þó ekki leikið gegn KR.

,,Eini ókosturinn við þetta er að Grétar Ólafur hann má ekki spila þennan leik," sagði Orri en KR lagði Grindavík í 1. umferð Landsbankadeildarinnar þar sem Grindvíkingar voru lengi vel inni í leiknum.

,,Við vorum inni í þeim leik allan tímann og getum vel unnið þetta lið á útivelli á góðum degi," sagði Orri að lokum.
Slapp
banner
banner