Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 13:37
Hafliði Breiðfjörð
Lúðvík þjálfari kvennaliðs ÍA: Verður erfitt en gaman
Kvenaboltinn
Lúðvík Gunnarsson þjálfari ÍA.
Lúðvík Gunnarsson þjálfari ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lúðvík Gunnarsson er þjálfari ÍA sem leikur í 1. deild kvenna og er eina liðið úr deildinni sem enn er í VISA-bikarnum þetta árið. Í hádeginu í dag var dregið í 8 liða úrslit og hans stúlkur drógust á móti Stjörnunni.

,,Mér líst mjög vel á að mæta Stjörnunni, þetta er annað af þeim tveimur liðum sem ég hafði vonast til að fá, þau voru Fylkir eða Stjarnan. Við hefðum viljað fá heimaleik en við verðum að taka þessu svona, þetta verður bara gaman," sagði Lúðvík í samtali við Fótbolta.net í dag eftir dráttinn.

Stjarnan hefur komið vel á óvart í sumar og er í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar sjö stigum á eftir KR sem er í öðru sætinu en á einn leik til góða. Lúðvík veit að andstæðingurinn verður þeim erfður.

,,Stjörnuliðið er gott og hefur verið að standa sig vel að undanförnu. Þær eru náttúrulega í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar. Þetta verður erfitt en bara gaman," sagði hann en eiga hans stúlkur möguleika gegn svo öflugu liði?

,,Það verður bara að koma í ljós, en auðvitað á maður möguleika í bikarnum. Þetta er bara þannig keppni að þú átt alltaf möguleika í öllum leikjum," sagði Lúðvík.

Leikurinn fer fram á heimavelli Stjörnunnar í Garðabænum en liðið leikur á gervigrasi sem þekur Stjörnuvöll. Hvað áhrif hefur það fyrir Skagastúlkur?

,,Það skiptir í sjálfu sér ekki máli," sagði Lúðvík. ,,Við erum með fína aðstöðu uppi á Akranesi á gervigrasi og undirbúum okkur bara vel fyrir það. Við æfum oft þarna inni þegar aðstæður úti eru ekki góðar, við erum alveg vanar gervigrasi og það eyðileggur ekkert fyrir okkur."
Slapp
banner