Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 13:38
Hörður Snævar Jónsson
Ásmundur: Ætti að vera tækifæri fyrir okkur
Sonur Ásmundar dregur síðustu kúluna úr skálinni.
Sonur Ásmundar dregur síðustu kúluna úr skálinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis var ánægður með að fá Víking í átta liða úrslitum VISA-bikarsins í dag en dregið var í dag. Fjölnir fékk heimaleik en hann fer fram þann 24. júlí.

,,Þetta er bara fínasti dráttur, gott að fá heimaleik og þetta ætti að vera tækifæri fyrir okkur þótt við vitum að þetta verður ekkert auðvellt fyrir okkur," sagði Ásmundur í samtali við Fótbolta.net eftir að ljóst var að liðið myndi mæta Víkingi.

Víkingur er annað 1. deildar liðið sem Fjölnir fær í röð en liðið sló ÍBV út í framlengdum leik á miðvikudag.

,,Það er gott og slæmt að fá 1. deildar lið, þau koma vel gíruð í þessa leiki og við þekkjum þeirra stöðu betur frá því í fyrra og þetta verður langt frá því að vera auðvelt en enga síður tækifæri sem við ætlum að klára."

Hann var sáttur með að fá heimaleik. ,,Það er það besta, það albest," sagði Ásmundur sem vonast eftir því að Fjölnir sé að verða bikarlið.

,,Vonandi getum við fest okkur í sessi með það en fyrst og fremst þetta klassíska að fá heimaleik og ég er nokkuð sáttur með þetta," sagði Ásmundur að lokum.
Slapp
banner
banner