Heimild: Sky
Paul Le Guen, knattspyrnustjóri Paris Saint Germain segir að liðið hafi mikinn áhuga á að fá Claude Makelele, leikmann Chelsea.
Le Guen er mikill aðdáandi Makelele og hann vill sjá hann spila á Frakklandi á næsta tímabili.
Makelele gaf það nýlega út að hann vildi enda feril sinn hjá Chelsea og segist Le Guen hafa talað við hann.
,,Ég hef talað við leikmanninn og sagt honum, líkt og í fyrra að ég vil fá hann til Parísar," sagði Le Guen við the Sun.



