Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 13:57
Hafliði Breiðfjörð
Sandra Sigurðardóttir: Það lið sem vill þetta meira vinnur
Kvenaboltinn
Sandra Sigurðardóttir.
Sandra Sigurðardóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjörnustúlkur fengu heimaleik gegn ÍA í 8 liða úrslitum VISA-bikars kvenna þegar dregið var í hádeginu í dag og Sandra Sigurðardóttir markvörður liðsins sagði við Fótbolta.net eftir dráttinn að hún eigi von á baráttuleik.

,,Mér líst vel á þetta, það er alveg sama hvaða lið við hefðum fengið, þetta er bikarleikur og það getur allt gerst," sagði Sandra í samtali við Fótbolta.net í dag.

ÍA var fyrirfram álitið auðveldasti drátturinn enda um að ræða eina liðið sem leikur í 1. deildinni, öll önnur eru í Landsbankadeildinni, má ekki segja að Stjarnan hafi því verið heppið með drátt?

,,Á pappírunum kannski, en þetta verður bara 50/50 leikur, 90 mínútur af baráttu um hvort liðið vill þetta meira, það lið tekur þetta," sagði Sandra.

Stjörnunni hefur gengið mjög vel á tímabilinu og er í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar, sjö stigum á efti KR sem er í öðru sætinu en á leik til góða. Sandra segir breytingar vera að skila sínu.

,,Það er búið að ganga ágætlega, það hafa verið breytingar á liðinu og umgjörð og kominn nýr þjálfari. Við byrjuðum upp á nýtt og það hefur gengið ágætlega. Leikmenn eru líka í betra formi," sagði hún ,,Maður á alltaf að stefna hátt og ef það gengur þá er maður bara ánægður með það."

Stjarnan hefur nú leikið sjö leiki í Landsbankadeildinni en er þessi góða frammistaða liðsins það sem koma skal út mótið? ,,Já við stefnum alltaf hátt og verðum bara að reyna og sjá hvort það gengur, það kemur bara í ljós."

Stjarnan á stórleik í Landsbankadeildinni á þriðjudagskvöld þegar liðið fær Íslandsmeistara Vals í heimsókn, Sandra er hvergi bangin fyrir þann leik og segir allt geta gerst þar.

,,Á góðum degi getum við lagt hvaða lið sem er og það er þannig með alla. Ef maður ætlar sér það nógu mikið þá getur maður nánast allt."
Slapp
banner