Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 13:48
Hörður Snævar Jónsson
Guðjón Baldvinsson: Allir leikir hér eftir séu skyldusigrar fyrir okkur
Guðjón fagnar marki gegn Grindavík í 1. umferðinni.
Guðjón fagnar marki gegn Grindavík í 1. umferðinni.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Guðjón Baldvinsson leikmaður KR var ánægður með að fá heimaleik í átta liða úrslitum VISA-bikarsins en liðið mætir Grindavík þann 24. júlí.

,,Það er alltaf gott að fá heimaleik og það var samkvæmt bókinni að við myndum fá Grindavík því við eigum þá í deildinni á sama tíma," sagði Guðjón í samtali við Fótbolta.net.

Hann segir stefnuna setta alla leið í ár. ,,Það er að sjálfsögðu markmiðið, það er mikil stemning í liðinu fyrir bikarnum og við ætlum okkur alla leið;" sagði Guðjón sem er ánægður með það hvernig leikur liðsins hefur verið að undanförnu.

,,Það er rosalegur stígandi í liðinu og það við erum farnir að ná betur og betur saman í hverjum leik auk þess að einstaklingar eru að bæta sig með hverjum leiknum. Við lærum betur inná hvern annan, það eru allir að vinna fyrir alla og það er lykilinn að þessari velgengni sem hefur verið."

Hann segir um skyldusigur sé að ræða en þó verði megi ekki vanmeta Grindavíkur liðið.

,,Ég held að allir leikir hér eftir séu skyldusigrar fyrir okkur þar sem mér finnst við vera með besta liðið í dag en Grindavík eru mjög sterkir og það er ljóst að við þurfum að mæta ákveðnir til leiks eins og undanfarið og halda stígandanum áfram," sagði Guðjón að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Slapp