Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 16:11
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Hodgson vill fleiri ný andlit til Fulham
Roy Hodgson, knattspyrnustjóri Fulham vill bæta við leikmannahóp sinn fyrir komandi tímabil.

Þeir Zoltan Gera og Mark Schwarzer hafa báðir komið til liðsins á frjálsri sölu og vill Hodgson bæta ennfremur við.

,,Félagsskiptin sem að við höfum náð í gegn hafa ekki kostað mikið. Mark Schwarzer og Zoltan Gera eru mjög hæfileikaríkir leikmenn og við hjá Fulham eru mjög heppnir að hafa þá hér," sagði Hodgson.

,,Við höfum auga með öðrum leikmönnum. Þó að það hafi verið hljótt á markaðinum í ár þá þýðir það ekki að liðin séu að vinna bak við tjöldin og hafi auga með leikmönnum. Við erum eitt af þessum liðum," bætti Roy Hodgson við.

Fredrik Stoor, leikmaður Rosenborg og Josip Simunic, króatískur leikmaður Herthu Berlín hafa báðir verið orðaðir við komu til Fulham.
Slapp
banner