Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 14:16
Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Erla: Förum Norður til að hefna okkar
Kvenaboltinn
Guðrún Erla Hilmarsdóttir.
Guðrún Erla Hilmarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Erla Hilmarsdóttir leikmaður Breiðabliks var ánægð með að hennar lið hafi dregist gegn Þór/KA í 8 liða úrslitum VISA-bikarsins í dag því þá getur hennar lið hefnt ófaranna frá því fyrr í sumar þegar Norðanstúlkur unnu þær 2-1.

,,Mér lýst vel á þetta, við erum að fara að heimsækja þær aftur til Akureyrar, það gekk ekkert svo vel síðast þegar við spiluðum á móti þeim og vorum einni færri stóran hluta leiksins. Þetta er bara fínt, við förum þarna og hefnum okkar á þeim," sagði Guðrún Erla í samtali við Fótbolta.net eftir dráttinn.

Nafn Þór/KA kom á undan upp úr hattinum og því mun leikurinn fara fram á Akureyri, gerir það málið ekki erfiðara fyrir Breiðablik að þurfa ða leika fyrir Norðan?

,,Nei, það er bara fínt," svaraði Guðrún Erla. ,,Það hefði reyndar verði betra að fá leikinn heima en þetta er fínt, þá mætum við aftur til Akureyrar og hefnum okkar á þeim. Við skuldum þeim alveg gríðarlega mikið svo við munum sýna hvað í okkur býr."

Breiðablik var spáð góðu gengi í sumar og jafnvel talið að þær myndu stríða toppliðunum. Það gekk hinsvegar ekki eftir og liðið er nú í fimmta sæti deildarinnar með 10 stig úr fyrstu átta umferðunum. Þær unnu hinsvegar síðasta leik sinn gegn HK/Víking 2-5 og eru komnar á skrið.

,,Ég hugsa það, við stóðum okkur mjög vel gegn HK/Víking og erum allar að koma til. Við erum að stilla okkur allar saman og þetta er að verða mjög fínt hjá okkur," sagði Guðrún Erla en hvað hefur verið að hjá liðinu?

,,Ég held að aðalmálið sem hafi verði að hjá okkur sé einbeitingin, við erum allar mjög góðar í fótbolta en þetta er bara hugarfarið. Þegar við komum inn á völlinn hefur þetta verið hugarfarið en það er allt að lagast núna. Við stóðum aðeins í Valsstúlkum og eftir þann leik held ég að þetta sé allt að koma."
Slapp
banner
banner