Heimild: Sky
Didier Drogba leikmaður Chelsea myndi íhuga það að ganga í raðir Real Madrid samkvæmt umboðsmanni hans.
Drogba hefur sterklega verið orðaður við brottför frá Stamford Bridge í sumar þrátt fyrir að hann hafi sjálfur sagt að hann vilji vera áfram.
Drogba hefur verið orðaður við Milan og Barcelona sem og Inter Milan þar sem Jose Mourinho fyrrum stjóri Chelsea er við stjórnvölin.
,,Af hverju ekki?" sagði Pierre Frelot umboðsmaður Drogba.
,,Didier er rólegur af því að hann er hjá frábæru félagi en Real Madrid er líka frábært félag."



