Heimild: AFP
Mark van Bommel, leikmaður Bayern Munchen hefur gefið kost á sér í hollenska landsliðið á ný eftir að Marco van Basten hætti sem landsliðsþjálfari.
Holland datt út úr EM í átta liða úrslitum fyrir Rússlandi og hefur Bert van Marwijk, tengdafaðir van Bommel tekið við liðinu.
Van Bommel, sem hefur leikið 40 landsleiki segist tilbúinn að spila fyrir þá appelsínugulu á ný.
,,Ég sagði að ég myndi koma aftur, ef að Marco færi. Núna er hann farinn og tengdafaðir minn er orðinn þjálfarinn. Ef hann þarfnast mín, þá gef ég kost á mér," sagði van Bommel.
Þessi 31 árs gamli miðjumaður verður ekki með Hollendingum á Ólympíuleikunum í ágúst, en hann verður þá á fullu með Bayern Munchen í þýsku Bundesligunni.


