,,Mér líst bara vel á þetta," sagði Rakel Hönnudóttir framherji Þór/KA við Fótbolt.net í dag en lið hennar dróst gegn Breiðablik í 8 liða úrslitum VISA-bikarsins í dag. ,,Við unnum þær síðast hérna heima og ætlum okkur það aftur," bætti hún.
Þór/KA á heimaleik því þær komu fyrst upp úr hattinum og Rakel var ánægð með það: ,,Það er best að spila fyrir norðan, við erum með mjög sterkan heimavöll," sagði Rakel.
Guðrún Erla Hilmarsdóttir leikmaður Breiðabliks sagði við Fótbolta.net fyrr í dag að hennar lið ætli að hefna ófaranna frá fyrri leik liðanna sem Þór/KA vann 2-1, Rakel ætlar ekki að láta það gerast.
,,Nei, við ætlum að vinna að sjálfsögðu. Þær ætla að koma hérna til að hefna sín en við látum það ekki gerast," sagði Rakel.
Blikar hafa verið að koma sér á skrið að nýju eftir að hafa byrjað mótið vel. ,,Þetta er mjög sterkt lið en við tökum á því," sagði Rakel. ,,Við ætlum okkur alla leið í bikarnum."
Þór/KA er í sjöunda sæti deildarinnar með sjö stig en gengi liðsins hefur dalað upp á síðkasteið. ,,Ég var ánægð svona framan af en við þurfum aðeins að bæta okkur ef við ætlum að halda okkur í þeim sætum sem við höfum ætlað okkur, um miðja deild," sagði Rakel. ,,Við töpuðum fyrir Aftureldingu og þessum neðri liðum, gerðum jafntefli við Fjölni og töpuðum fyrir Fylki. Sem er ekki gott. "




