Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 14:45
Hafliði Breiðfjörð
Laufey Björnsdóttir: Með toppleik getum við unnið alla
Kvenaboltinn
Laufey Björnsdóttir.
Laufey Björnsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Laufey Björnsdóttir leikmaður Fylkis sagði við Fótbolta.net í dag að henni litist vel að mæta KR í 8 liða úrslitum VISA-bikarsins en dregið var í hádeginu í dag.

,,Mér líst mjög vel á þetta, það er spennandi að fá KR. Auðvitað verður þetta erfitt, þær eru mjög góðar, en við berjumst bara," sagði Laufey.

Liðin hafa áður mæst í deildinni á Fylkisvelli en þá hafði KR sigur með fimm mörkum gegn einu. Laufey telur sitt lið hafa bætt sig síðan þá.

,,Við erum búnar að standa okkur mjög vel í síðustu tveimur leikjum allavega og vonandi er kominn smá stöðugleiki í liðið," sagði hún og bætti við að þær gætu lagt KR.

,,Við getum það alveg, með okkar toppleik getum við unnið alla."

Leikurinn fer fram á Fylkisvelli og Laufey er á því að það geti skipt miklu fyrir liðið að spila heima.

,,Það skiptir miklu að fá heimaleik og sérstaklega á móti KR því þá er miklu meiri stemmning. Maður vill miklu meira vinna þegar maður heyrir í mörgum að styðja sig til að bregðast þeim ekki," sagði hún.

Fylkir hafði lagt Fylki í síðustu umferð bikarsins með fimm mörkum gegn engu. Laufey segir öðruvísi að spila bikarleiki.

,,Það er eitthvað við bikarleikina, maður verður meira baráttuglaður, við ætlum okkur áfram í undanúrslitin úr þessum leik."
Slapp
banner