,,Mér líst mjög vel á dráttinn, þetta er bara gott," sagði Hrefna Huld Jóhannesdóttir fyrirliði KR í samtali við Fótbolta.net í dag eftir að í ljós kom að hennar lið hafi dregist gegn Fylki í 8 liða úrslitum VISA bikars kvenna.
Liðin hafa einu sinni áður mæst í sumar en það var í Landsbankadeildini þar sem KR fór með 5-1 sigur af hólmi.
,,Ég sá reyndar ekki þann leik því ég lá heima í flensu," sagði Hrefna. ,,En þessi leikur verður eins og hver annar leikur sem við ætlum okkur að vinna," bætti hún við en er eitthvað öðruvísi að fara í bikarleik en deildarleik.
,,Það verður bara að vinna þennan leik eins og alla aðra leiki og er ekkert öðruvísi rútína fyrir það," sagði hún ,,Ég hef ekkert séð til Fylkisliðsins en þær eru örugglega með fínt lið."
KR eru bikarmeistarar síðasta árs og hafa því titil að verja. Hrefna segir það að sjálfsögðu stefnuna.
,,Að sjálfsögðu, það var mjög gott að vinna þetta í fyrra, og við viljum að sjálfsögðu vinna aftur í ár."


