Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 15:11
Hafliði Breiðfjörð
Linda Rós: Verður gaman fyrir mig og eflir mig
Kvenaboltinn
Linda Rós í leik með Keflavík fyrr í sumar.
Linda Rós í leik með Keflavík fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Linda Rós Þorláksdóttir varnarmaður Keflavíkur segir að sér lítist vel á að mæta Val í 8 liða úrslitum VISA-bikarsins en dregið var í hádeginu í dag. Linda Rós er sjálf samningsbundin Val en var lánuð frá félaginu til Keflavíkur fyrir tímabilið.

,,Mér líst mjög vel á þetta," sagði Linda Rós í samtali við Fótbolta.net í dag en hún býst við að fá að vera með Keflavík í leiknum þrátt fyrir að vera á láni frá félaginu.

,,Ég held að ég megi alveg spila þennan leik. Það verður bara gaman fyrir mig og eflir mig bara upp að spila gegn Val. Ég hef spilað gegn þeim áður í deildinni, það var svolítið skrítið fyrst en svo venst það bara."

Keflavík er í sjötta sæti deildarinnar með átta stig úr átta leikjum en Valur í toppsætinu eftir að hafa unnið alla sína leiki. Linda Rós er á því að Keflavík eigi möguleika á að slá Val út.

,,Að sjálfsögðu ef við erum agaðar og skipulagðar og allt gengur eftir eins og við leggjum upp þá eigum við alveg að geta slegið þær út," sagði hún.
Slapp
banner
banner