Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 15:22
Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson: Mættum ekki til leiks í fyrra
Kvenaboltinn
Freyr Alexandersson þjálfari Vals.
Freyr Alexandersson þjálfari Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson annar þjálfara Vals sagði við Fótbolta.net í dag að lið hans ætli sér að vinna bikarmeistarattitilinn í ár en liðið dróst í hádeginu gegn Keflavík í átta liða úrslitum bikarsins.

,,Mér líst rosalega vel á þetta og er mjög ánægður með að fá heimaleik. Í byrjun sumars misstum við tvo heimaleiki út og spiluðum í Egilshöll svo það er ljúft að fá að spila heima, okkur líður vel þar," sagði Freyr í samtali við Fótbolta.net.

Valur féll út í átta liða úrslitum bikarsins á síðustu leiktíð en Freyr er á því að betri árangur náist í ár.

,,Við mættum ekki til leiks á Kópavogsvelli í fyrraen munum mæta til leiks á Hlíðarenda og vinna Keflavík. Hugarfarið þarf að vera betra númer eitt, tvo og þrjú," sagði Freyr. ,,Við ætlum okkur að fara og ná okkar markmiðum í bikarnum svo við förum áfram. Markmiðið er að sjálfsögðu að vinna titilinn."

Linda Rós Þorláksdóttir varnarmaður Keflavíkur er samnignsbundinn Val en var lánuð til Suðurnesjaliðsins fyrir tímabilið. Freyr segir að hún fái að spila leikinn, engar kvaðir séu um annað að hálfu Vals.

,,Hún fær að spila á móti okkur, það eru engin ákvæði um að hún megi það ekki svo við mætum Lindu Rós af fullum krafti. Það verður bara gaman, við höfum mætt henni áður í sumar og við þekkjum inn á hana og hún þekkir inn á okkur. Þetta verður bara fjör."
Slapp
banner