Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 04. júlí 2008 15:29
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Andrea Dossena til Liverpool (Staðfest)
Liverpool hefur gengið frá kaupunum á Andrea Dossena vinstri bakverði Udinese.

Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við Liverpool en talið er að kaupverðið hljóði upp á sjö milljónir punda.

Dossena er annar leikmaðurinn sem kemur til Liverpool í sumar en áður hafði svissneski bakvörðurinn Philipp Degen skrifað undir samning við félagið.

Dossena mun berjast við Fabio Aurelio um sæti í byrjunarliði Liverpool en John Arne Riise yfirgaf félagið á dögunum og fór til Roma.

Dossena á einn A-landsleik að baki með Ítölum en hann skoraði tvö mörk í 63 leikjum á ferli sínu með Udinese.
Slapp
banner