Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 16:52
Hafliði Breiðfjörð
Nýjasti leikmaður Liverpool fór erfiðu leiðina á toppinn
Nikola Saric í leik með Herfölge.
Nikola Saric í leik með Herfölge.
Mynd: Vefsíða Herfölge
Liverpool hefur nú gengið frá kaupum á hinum 17 ára gamla Nikola Saric frá Herfölge í Danmörku en leikmaðurinn sem hefur verið gífurlega eftirsóttur af helstu toppliðum Evrópu hefur nú gert þriggja ára samning við Liverpool með möguleika á fjórða árinu.

Líf Saric sem er U18 ára landsliðsmaður Danmerkur hefur ekki verið neinn dans á rósum og í raun má hann teljast heppinn að vera hafa komist til Danmerkur á sínum tíma.

Hann er fæddur í Bosníu og á bosníska móður en serbneskan föður. Þegar stríðið braust úr í landinu voru miklar þjóðernirshreinsanir í landinu og fjölskyldan rétt slapp frá grimmdarverkunum.

Þau fóru til Danmerkur þar sem þau voru látin í flóttamannabúðir á eyjunni Fanö og voru í raun ekki hluti af danska þjóðfélaginu næstu 3-4 árin meðan þau voru föst í kerfinu. Eftir það fengu þau svo að fara til Kaupmannahafnar þar sem þau bjuggu í einu af verri hverfum borgarinnar sem heitir Amager.

Saric sjálfur hafði alist upp í smærri liðum í Danmörku framan af ferli sínum en fór til Herfölge 12 ára. Þá strax var hann farinn að vekja athygli stórliðanna í Evópu og 13 ára gamall hafnaði hann tilboði Barcelona sem vildi fá hann í sínar raðir og bauðst til að flytja alla fjölskylduna til Spánar.

Eftir það hefur fjöldi félaga sýnt honum áhuga og hann hefur farið á reynslu hjá félögum eins og Tottenham, Chelsea, Feyenoord og Heerenveen.

Tottenham, Barcelona og Juventus gengu hvað harðast eftir að fá hann í sínar raðir nú í sumar en hann hafnaði þeim öllum eftir að áhugi Liverpool kom til.

Ástæða þess var hversu mikill áhugi var innan enska félagsins á að fá hann í sínar raðir. Rafael Benítez knattspyrnustjóri félagsins hefur fylgst með honum í tvö ár og hann og aðrir fulltrúar félagsins hafa séð yfir 20 leiki með honum á þeim tíma án þess þó að hafa tilkynnt Saric sjálfum eða félagi hans um að þeir hafi mætt á svæðið.

Þeir töldu svo réttan tíma til að setja allt í gang núna í sumar og höfðu samband við Guðlaug Tómasson, íslenskan umboðsmann leikmannsins, og óskuðu eftir viðræðum um félagaskipti.

Guðlaugur sagði við Fótbolta.net í dag að Benítez hafi sjálfur haft samband að við sig og óskað eftir viðræðunum og í kjölfarið hafi hann farið með Saric til Liverpool borgar og rætt við félagið. Samningar gengu hratt fyrir sig enda var áhugi Liverpool á að ná samnignum mjög mikill.

Hjá Liverpool mun Saric vera í aðalliðshópi félagsins og æfa og spila einnig með varaliðinu á hinu fræga Melwood æfingasvæði undir stjórn Benítez og hans aðstoðarmanna.
Slapp