Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 18:08
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: BBC 
Geovanni til Hull City (Staðfest)
Ensku nýliðarnir í úrvalsdeildinni hafa fest kaup á brasilíska miðvallarleikmanninum Geovanni frá Manchester City.

Geovanni, sem er 28 ára gamall mun því halda til Ítalíu, þar sem Hull undirbúa sig fyrir komandi átök í deildinni.

,,Hann er með mikla hæfileika og verður frábær kaup fyrir okkur," sagði Brian Horton, aðstoðarþjálfari Hull.

,,Við höfðum heyrt mikið af leikmanninum og töluðum við fólk um hann, og vitum sjálfir að hann er góður þar sem við sáum hann spila," sagði Horton enn fremur.

Geovanni var leystur undan samning hjá Manchester City fyrir nokkrum dögum og voru Hull ekki lengi að átta sig og náðu honum undir eins.

Einnig mun franski landsliðsmaðurinn Bernard Mendy, sem leikur með PSG í heimalandi sínu æfa með Hull á Ítalíu, en ekki hefur verið gengið frá kaupum á þeim varnarmanni.
Slapp
banner
banner