Heimild: Heimasíða Man City
Richard Dunne, fyrirliði Manchester City hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu fjögurra ára, en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.
Dunne, sem er 28 ára gamall var orðaður við önnur félög í sumar eftir að Mark Hughes tók við þjálfarataumnum, en eftir góðar viðræður við þjálfarann þá ákvað írski landsliðsmaðurinn að framlengja samning sinn til 2012.
,,Ég er hæstánægður með samninginn. Forgangur minn er, var og hefur alltaf verið að leika með Manchester City og mér líður frábærlega hérna," sagði Dunne eftir undirskriftina.
,,Þegar Hughes tók við liðinu þá voru allir ánægðir og ég sérstaklega þar sem ég vildi klára að framlengja samning minn við félagið sem fyrst," sagði Dunne enn fremur.
,,Ég er ánægður með útkomuna og er Dunne einn af lykilmönnum liðsins. Þetta var í forgang hjá mér að semja við hann sem fyrst, því hann var einn af þeim sem félagið þarf að halda," sagði Mark Hughes.
Dunne hefur spilað 263 leiki fyrir hönd Man City og skoraði í þeim 6 mörk á ferlinum. Hann tók við fyrirliðabandinu 20. júlí 2006, eftir að Sylvian Distin sagðist vilja fara frá félaginu.



