Heimild: BBC
Cristiano Ronaldo mun væntanlega fara í aðgerð á ökkla í næstu viku en þetta var ljóst eftir að hann hitti sérfræðing í dag.
Sérfræðingurinn mælti með að Ronaldo færi í aðgerð en læknalið Manchester United og portúgalska landsliðsins hafði einnig sagt það sama.
Ronaldo, sem er 23 ára, gæti verið frá í allt að sex vikur og því gæti hann misst af byrjun tímabilsins.
Enska úrvalsdeildin hefst 16.ágúst og óvíst er hvort Ronaldo verði klár í slaginn þá.
Mikil umræða hefur verið um framtíð Ronaldo að undanförnu en hann lýsti því yfir eftir EM að hann hefði áhuga á að ganga til liðs við Real Madrid.
United ætlar hins vegar ekki að leyfa Ronaldo að fara til Real Madrid og fyrr í dag sló talsmaður enska félagsins að nýju á þær sögusagnir að spænsku meistararnir séu búnir að krækja í Portúgalann knáa.



